
Agnes Edda
Agnes Edda er keramiker og stofnandi Leir Studio. Agnes Edda leggur áherslu á einföld en vönduð form. Hún útskrifaðist af keramikbraut Myndlistaskólans í Reykjavík árið 2024 en hefur nú unnið með leir í þónokkur ár. Samhliða náminu starfaði hún í tvö ár í Reykjavík Clay með keramikernum Birgitte Munck og kenndi þar ýmis námskeið. Agnes hélt svo í eins árs starfsnám til Kaupmannahafnar til keramikersins Mariu Enæs.
verkstæðið
Leir Studio.
Leir studio er keramik studio sem opnar í Reykjavík haustið 2026. Við höldum námskeið og viðburði og bjóðum upp á stúdíóaðild.
Stúdíóið verður útbúið rennibekkjum, brennsluofni og góðri vinnuaðstöðu. Meðlimir Leir studio hafa aðgang að búnaði stúdíósins, efnum á kostnaðarverði og reglulegum brennslum.