Ég vil þakka öllum nemendum mínum og öðrum viðskiptavinum í gegnum árin fyrir einstakar ánægjustundir.
Steinunn Helgadóttir
Af persónulegum ástæðum er Leirkrúsin til sölu!
Leirkrúsin hefur verið starfrækt í fimmtán ár með fjölbreyttum námskeiðum og útleigu á vinnuaðstöðu. Vinnustofan er vel búin öllum nauðsynlegum tækjum og verkfærum til leirmótunar og með innflutning á einstökum leir fyrir starfsemina.
Efni
Leir á lager
Glerungahráefni á lager
Blandaðir glerungar og uppskriftir
Ýmis ný verkfæri á lager
Tæki
2 rafmagnsofnar, 3 fasa með háfum - CERAMA / POTTERY CRAFT
1 gasofn með 2 brennurum - HEIMASMÍÐI
1 gasofn fyrir rakúbrennslu - MO KNUDSEN
3 rennibekkir - BRENT CMC
1 prófílpressa
Búnaður
Geymslugámur vel einangraður
Kavalettur, kefli, penslar o.fl. handverkfæri til kennslu og afnota í útleigu
Hillur
Vinnuborð
Stólar
Fagbókasafn og myndbönd
Kaffistofa
Markaðsmál
Vefsíða ásamt léni www.leir.is
Viðskiptamannaskrá á póstlista og facebook
Vinnustofan er 118 m² - á efri hæð er stórt vinnuborð, 2 vaskar, góðar hillur og vel búin kaffistofa - á neðri hæð eru rennibekkir, ofnar, efnageymsla og góðar hillur - við inngang í vinnustofuna er baðherbergi með sturtu.
Vinnustofan er á Marbakka, Hákotsvör 9 Álftanesi.
Húsið allt er til sölu, en einnig er auðvelt að flytja fyrirtækið hvert á land sem er í gámnum!
Sjá myndir og aðrar uppl. um starfsemina á hlekkjum heimasíðunnar.
Allar nánari uppl. veitir Steinunn í síma: 555 1809 / 661 2179
Námskeið á vorönn 2011
Ný námskeið í handmótun og mótun á rennibekk byrja í apríl
Helgarnámskeið í rakú- og tunnubrennsla í apríl-maí.
- Sjá allar nánari uppl. undir hlekknum námskeið -
Opin vinnustofa
opið alla virka daga 9.00 - 18.00
fimmtudaga er opið fram á kvöld; 9.00 - 21.00
Skráning í síma 555 1809 / 661 2179
eða sendið línu á; leirkrus@leir.is
Fyrir byrjendur, handmótun og mótun á rennibekk, einnig helgarnámskeið í rakú- og tunnubrennsla í apríl-maí.
- Sjá allar nánari uppl. undir hlekknum námskeið -
Opin vinnustofa
opið alla virka daga 9.00 - 18.00
fimmtudaga er opið fram á kvöld; 9.00 - 21.00
Skráning í síma 555 1809 / 661 2179
eða sendið línu á; leirkrus@leir.is
Hjartanlega velkomin á handverksmarkað hjá Leirkrúsinni Hákotsvör 9, Álftanesi
aðventuhelgina 27. – 28. nóv. kl. 13.00 - 18.00
tökum einnig þátt í
Jólamarkaði við Elliðavatni í Heiðmörk
11. -12. des. kl. 11.00 – 17.00
Fjölbreytt úrval af einstakri gjafavöru úr leir og annað handverk.
Þegar þú verslar hjá okkur styrkirðu Barnabros
HAUSTIÐ
Fyrstu leirmótunarnámskeiðin eru farin að rúlla af stað
með frábærri þátttöku
Skráning er hafin á næstu námskeið í handmótun og
rennslu sem byrja 19. og 20. október
Nokkur pláss eru ennþá laus á helgarnámskeiðin
í rakú- og tunnubrennslu
Opin vinnustofa mán- þriðj- og fimmtudaga
Innritun er hafin á haustönn 2010
fimmtánda starfsárið hjá Leirkrúsinni!!!
Opin vinnustofa hefst fimmtudaginn 2. sept.
Nýung á þessari önn er tunnubrennsla, leiðsögn á Opinni vinnustofu á fimmtudögum og svo vil ég minna á að hægt er að panta sérsniðna móttöku fyrir hópa.
Sjá nánar undir viðkomandi hlekkjum.
Ávalt velkomin í Leirkrúsina.
........framundan hjá Leirkrúsinni í vor:
Helgarnámskeið í leirmótun fyrir byrjendur, um meðferð leirlita og blöndun glerunga í apríl og síðast en ekki síst, námskeið í rakúbrennslu í maí.
sjá nánar undir námskeið og myndir
Innritun er hafin á námskeið á vorönn 2010
Handmótun og mótun á rennibekk fyrir byrjendur, en einnig framhaldsnámskeið fyrir alla þá sem vilja bæta við þekkingu sína í leirmótun - sjá námskeið.
Námskeið í rakúbrennslu og glerungagerð verður haldið í vor - áhugasamir hafið endilega samband.
Nánari uppl. í síma 555 1809 / 661 2179
eða sendið línu á; leirkrus@leir.is
Opin vinnustofa hefst aftur 11. janúar
opið mánu- þriðjudaga 9.00 - 18.00
fimmtudaga er opið fram á kvöld; 9.00 - 22.00
Samkvæmt frétt frá Rannsóknasetri verslunarinnar mun jólagjöfin í ár vera "jákvæð upplifun." Þetta er niðurstaða dómnefndar sem hefur fengið hátt á annað hundrað tillögur að jólagjöfinni í ár.
Þessi gjöf, "jákvæð upplifun" er talin falla að þeim tíðaranda sem nú ríkir. Í þessu vali felst að jólagjöfin veiti þeim sem fær gjöfina jákvæða upplifun og verðið rúmist innan fjárhags gefandans.
Gjafabréf hjá Leirkrúsinni!
Námskeið hjá Leirkrúsinni er svo sannarlega jákvæð og skemmtileg upplifun. Þú velur upphæð sem gengur upp í námskeið, leirkaup eða þátttöku á opnu vinnustofunni.
Þú getur pantað gjafabréf með nafni og upphæð hjá leirkrus@leir.is eða í síma: 555 1809 / 661 2179
